» Valmynd
» Aðstaðan
Verið
Verið Vísindagarðar

Verið

  • Iceprótein ehf er með rannsókna- og þróunarstarfssemi sína í Verinu Vísindagörðum við höfnina á Sauðárkróki.  Verið annast rekstur kennslu- og rannsóknaraðstöðu ásamt því að skapa aðstöðu og vettvang til samstarfs milli vísindamanna og fyrirtækja á sviði nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi. Í Verinu koma saman frumkvöðlar og fræðimenn sem leitast við að rannsaka og finna ný tækifæri og koma þeim á framfæri samfélaginu til hagsældar.


Tilraunaverksmiðja MATÍS

  • Matís hefur komið upp Líftæknismiðju í Verinu þar sem er aðstaða fyrir tilraunavinnslu fyrir aðila sem hafa áhuga á að setja upp smærri skala vinnslu á sviði líftækni. Þar hefur nú þegar verið settur upp  himnusíunarbúnaður og úðaþurrkari, ásamt fleiri tækjum til einangrunar og vinnslu lífefna.  Með samningi við Matís nýtir Iceprótein sér þessa aðstöðu við sitt rannsókna- og þróunarstarf.  Það er stefna Matís er að því að þessi aðstaða verði meginmiðstöð þróunar á sviði líftækni og vinnslu lífefna á landinu og stefnt er að því að gera þessa aðstöðu samkeppnishæfa á alþjóðlegan mælikvarða sem nýtist fyrir námskeið nemenda á öllum stigum háskólanáms.
© 2012 · Iceprotein ehf · Eyrarvegi 18 · 550 Sauðárkrókur · Sími: 455 4400 · Fax: 455 4401 · iceprotein[hja]iceprotein.is